Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 25. janúar 2022 13:00
Elvar Geir Magnússon
Milan vill Aubameyang en launin eru hindrun
Mynd: EPA
AC Milan er meðal félaga sem hafa áhuga á að fá Pierre-Emerick Aubameyang, fyrrum fyrirliða Arsenal. Launakröfur sóknarmannsins eru þó hindrun fyrir ítalska stórliðið.

Arsenal vill losa Aubameyang áður en janúarglugganum verður lokað og leikmaðurinn sjálfur vill spila áfram í Evrópu.

Olivier Giroud og Zlatan Ibrahimovic hafa verið í meiðslavandræðum og AC Milan er að skoða möguleika sína.

Milan er meðal félaga sem hafa áhuga á að fá Aubameyang en hann hefur einnig verið orðaður við Sevilla, Marseille, Juventus og Paris Saint-Germain.

Samningur Aubameyang rennur út sumarið 2023 en árið 2007 spilaði hann með unglingaliðum AC Milan. Tíu árum síðar reyndi AC Milan að fá hann aftur en hann yfirgaf þá Borussia Dortmund og samdi við Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner