Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 25. janúar 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Rúnar Alex í liði vikunnar - Átti stórleik í tapi gegn botnliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Alex Rúnarsson er á láni frá Arsenal hjá OH Leuven sem leikur í efstu deild í Belgíu.

Hann er í liði 23. umferðar eftir að hafa átt stórleik í markinu þrátt fyrir að hafa fengið á sig þrjú mörk.

Leuven sem er í 13. sæti deildarinnar tapaði 3-1 gegn botnliði Beerschot. Þrátt fyrir það var Rúnar í liði vikunnar.

Beerschot var með ótrúlega yfirburði í leiknum en Rúnar þurfti að taka á honum stóra sínum níu sinnum í leiknum.

Næsti leikur liðsins er gegn Waregem á morgun. Leuven er þremur stigum á undan Waregem.


Athugasemdir
banner
banner