Mainz 1 - 2 Borussia D.
1-0 Lee Jae Sung ('2 )
1-1 Julian Ryerson ('4 )
1-2 Giovanni Reyna ('90 )
1-0 Lee Jae Sung ('2 )
1-1 Julian Ryerson ('4 )
1-2 Giovanni Reyna ('90 )
Bandaríski landsliðsmaðurinn Giovanni Reyna var hetja Borussia Dortmund annan leikinn í röð er hann gerði sigurmarkið í 2-1 sigri liðsins á Mainz í þýsku deildinni í kvöld.
Suður-Kóreumaðurinn Lee Jae Sung kom Mainz yfir á 2. mínútu með skalla eftir hornspyrnu en Dortmund var fljótt að svara og jafnaði tæpum tveimur mínútum síðar er Julian Ryerson skoraði með skoti sem fór af varnarmanni og yfir markvörð Mainz.
Það stefndi allt í jafntefli í Mainz en þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma kom sigurmark Dortmund. Sebastien Haller skallaði hornspyrnu Julian Brandt á fjærstöng og þar var Reyna mættur til að pota boltanum í netið.
Annar leikurinn í röð sem hann skorar sigurmark Dortmund og liðið nú í 4. sæti með 31 stig en Mainz í 12. sæti með 20 stig.
Athugasemdir