25.01.25 - 16:06
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Retegui heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Atalanta

Retegui hefur skorað 16 mörk á þessu tímabili

Mynd: Getty Images

Como 1 - 2 Atalanta
1-0 Nico Paz ('30 )
1-1 Mateo Retegui ('56 )
1-2 Mateo Retegui ('70 )
1-0 Nico Paz ('30 )
1-1 Mateo Retegui ('56 )
1-2 Mateo Retegui ('70 )
Ítalski landsliðsmaðurinn Mateo Reteugi skoraði tvö mörk er Atalanta kom til baka og vann 2-1 sigur á nýliðum Como í Seríu A í dag.
Hinn afar eftirsótti Nico Paz skoraði fyrir Como eftir hálftímaleik með stórkostlegu skoti úr teignum efst upp í samskeytin vinstra megin og skildi það mark liðin að í hálfleik.
Í þeim síðari tókst Retegui að snúa við taflinu fyrir Atalanta með tveimur mörkum á tæpum fimmtán mínútum. Bæði mörkin voru klassísk framherjamörk úr teignum. Hann komst fram fyrir varnarmann í fyrra markinu og skóflaði boltanum í netið og skoraði síðan með góðu skoti af stuttu færi í sigurmarkinu.
Retegui er markahæsti leikmaður deildarinnar með 16 mörk, þremur meira en Marcus Thuram hjá Inter.
Atalanta er með 46 stig í 3. sæti deildarinnar en Como í 13. sæti með 22 stig.