Fotbolti.net
25.02.19 - 18:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Baldvin Ólafs aftur í KA (Staðfest)

Baldvin var í liði KA sem vann Inkasso deildina árið 2016

Baldvin var í liði KA sem vann Inkasso deildina árið 2016

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Baldvin Ólafsson er kominn aftur í KA frá Magna. Baldvin skipti úr KA í Magna í sumarglugganum árið 2017.
Baldvin lék sautján leiki í Inkasso deildinni í fyrra þegar Magni hélt sér uppi, með sigri í síðasta leik, eftir að hafa verið í mikilli fallbaráttu allt tímabilið.

Baldvin er varnarmaður en hann hefur spilað 154 leiki í deild og bikar fyrir KA, Magna og Þór. Hann hefur í þeim leikjum skorað fjögur mörk.

Baldvin verður 34 ára í mars.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.