Fotbolti.net
25.02.19 - 15:29
Elvar Geir Magnússon

Flugvél Sala féll um þúsundir feta á 20 sekúndum

Ný mynd af brakinu.

Ný mynd af brakinu.

Canon

Mynd: PA

Rannsóknarnefnd flygslysa í Bretlandi birti í dag nýjar myndir af flaki flugvélarinnar sem var með fótboltamanninn Emiliano Sala innanborðs.

Flakið var í þremur hlutum sem héldust saman á rafmagnsvírum.

Opinberað er að vélin féll þúsundir feta á 20 sekúndna kafla, nokkrum mínútum eftir að flugmaðurinn Dav­id Ib­bot­son hafði beðið um leyfi til að lækka flugið þar sem skyggni var slæmt.

Talið er að flugvélin hafi hrapað nánast lóðrétt niður í sjóinn í Ermarsundi.
Lík Sala er fundið og greint var frá því að miklir áverkar á höfði og bringu hafi dregið hann til dauða. Lík flugmannsins hefur ekki fundist en þeir voru tveir um borð.

Flugvélin var á leið til Cardiff frá Frakklandi en Sala var nýgenginn í raðir Cardiff City frá Nantes.

Verið er að skoða hvort Ibbotson hafi haft leyfi til að fljúga Sala og hvort flugið hafi verið löglegt.
Flugvél Sala féll um þúsundir feta á 20 sekúndum
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.