Fotbolti.net
25.02.19 - 16:40
Magnús Már Einarsson

Hermann Ágúst í Grindavík (Staðfest)

Hermann í leik með Þrótti á sínum tíma.

Hermann í leik með Þrótti á sínum tíma.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík hefur fengið sóknarmanninn Hermann Ágúst Björnsson í sínar raðir en hann fékk leikheimild með liðinu í dag.
Hermann Ágúst er 26 ára gamall en hann er uppalinn í Þrótti þar sem hann spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki árið 2012.

Í fyrra spilaði Hermann Ágúst með ÍH í 4. deildinni en hann skoraði þrjú mörk í fjórum leikjum.

Hermann hefur æft með Grindvíkingum í vetur og spilað í Fótbolta.net mótinu en hann hefur nú fengið félagaskipti.

Komnir:
Hermann Ágúst Björnsson frá ÍH
Josip Zeba frá HAGL
Marc McAusland frá Keflavík
Mirza Hasecic frá Sindra
Patrick N'Koyi frá Top Oss í Hollandi
Vladan Djogatovic frá Serbíu
Vladimir Tufegdzic frá KA

Farnir:
Björn Berg Bryde í Stjörnuna
Brynjar Ásgeir Guðmundsson í FH
Kristijan Jajalo
Sam Hewson í Fylki
Sito til Bandaríkjanna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.