25.02.19 - 12:49
Elvar Geir Magnússon
Kallað eftir því að Azpilicueta verði sviptur fyrirliðabandinu

Cesar Azpilicueta þótti ekki standa sig sem fyrirliði í gær.

Mynd: Getty Images

Cesar Azpilicueta, fyrirliði Chelsea, var hvergi sjáanlegur meðan uppákoman ótrúlega varðandi Kepa Arrizabalaga átti sér stað á Wembley í gær.
Margir stuðningsmenn Chelsea telja að Azpilicueta hafi þar sýnt skort á leiðtogahæfileikum og kalla eftir því að fyrirliðabandið verði tekið af honum.
<i>„Azpilicueta var veikur í þessu atviki. Hann er enginn fyrirliði. Hann var áhorfandi á meðan þetta fíaskó átti sér stað. Sorglegt,"</i> skrifaði einn á Twitter og margar fleiri færslur voru á þennan veg. Fólk er óánægt með að hann hafi ekki skipt sér neitt af og reynt að miðla málum í deilunni.
Eftir leik sagði Azpilicueta við fjölmiðla að hann gæti ekki tjáð sig um atvikið því hann hafi ekki alveg vitað hvað hefði átt sér stað.

Kepa neitaði að fara af velli þegar Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, hugðist setja Willy Caballero í markið í úrslitaleik deildabikarsins. Sarri hætti á endanum við að gera skiptinguna en var bálreiður og uppákoman öll hin vandræðalegasta fyrir Chelsea.
Kepa varði eina spyrnu í vítaspyrnukeppninni en það dugði ekki til og Manchester City vann leikinn.
Kepa og Sarri hafa báðir stigið fram og reynt að tala uppákomuna niður og kenna þeir samskiptaörðugleikum um.