25.02.19 - 21:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Messi gerði eins og Kepa gerði í gær - neitaði að fara af velli

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Kepa, markvörður Chelsea, var í sviðsljósinu í gær þegar hann neitaði að fara út af í úrslitaleik Deildabikarsins. Kepa var búinn að liggja tvisvar eftir í framlengingunni en neitaði að fara út af þegar Sarri, stjóri Chelsea, ætlaði að taka hann af velli.
Mikið hefur verið rætt um atvikið og skoðun flestra er sú að Kepa lét Sarri líta ansi illa út með því að neita að fara af velli í leiknum gegn Manchester City.
Árið 2014 neitaði Lionel Messi, einn besti leikmaður sögunnar, að fara af velli þegar að Luis Enrique, stjóri hans hjá Barcelona, ætlaði að taka hann af velli í leik gegn Eibar. Lionel Messi hafði líkt og Kepa sigur í þeirri baráttu gegn þjálfaranum. Enrique tók Neymar af velli í staðinn.
Kepa er sem sagt ekki sá eini sem hefur neitað að fara af velli. Chelsea tapaði í vítaspyrnukeppni og hefði Kepa sennilega átt að gera betur þegar Sergio Aguero skoraði úr frekar slakri vítaspyrnu.
Smelltu hér til að sjá þegar Kepa neitaði að fara af velli.
Sjáðu atvikið með Messi hér að neðan.

Messi refuses to be substituted against Eibar .The two engaged in a war of hand-waving before Messi turned away his head, walking further up the field and ignoring his boss’ pleas. Enrique wanted resting messi for next match.#CHEMCI #sarri #KepaGate pic.twitter.com/I9018o3oaY
— Rohan waghe (@waghe_rohan) February 25, 2019

Mynd: Getty Images