Fotbolti.net
25.02.19 - 06:00
Arnar Helgi Magnússon

Reda Ait Maamar í Selfoss (Staðfest)

Reda Ait Maamar í Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfyssingar halda áfram að styrkja leikmannahópinn fyrir komandi átök í 2. deild í sumar en þeir hafa fengið til sín Frakkann Reda Ait Maama.
Maama er vinstri kantmaður en hann hefur æft með Selfyssingum í vetur. Leikmaðurinn var samningslaus en hann hefur leikið með liðum í Belgíu, Frakklandi og Portúgal.

Maama var í leikmannahópi Selfoss sem að sigraði Þrótt V. í Lengjubikarnum í gær. Hann kom inná á 62. mínútu en sigurmark Selfyssinga kom á 87. mínútu.

Jón Steindór Sveinsson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss, segir að Maama sé öflugur og vinnusamur leikmaður sem að er öflugur á boltanum.

Næsti leikur Selfyssinga er gegn KH á JÁVERK-vellinum þann 1. mars.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.