banner
   þri 25. febrúar 2020 19:31
Brynjar Ingi Erluson
Steaua án sigurs í þremur leikjum - „Þeir stunda of mikið kynlíf"
Leikmenn Steaua Bucharest þurfa að slaka aðeins á í svefnherberginu
Leikmenn Steaua Bucharest þurfa að slaka aðeins á í svefnherberginu
Mynd: Getty Images
Rúmenska knattspyrnuliðið Steaua Bucharest hefur tapað síðustu þremur leikjum sínum í toppbaráttunni í Rúmeníu en eigandi félagsins er á þeirri skoðun að leikmennirnir stundi of mikið kynlíf.

Steaua tapaði fyrir nágrönnum þeirra í Dinamo á dögunum en auk þess gerði liðið jafntefli gegn Clinceni og Chindia en bæði liðin eru í fallbaráttu.

Giga Becali, eigandi Steaua, kennir of miklu kynlífi um en hann bendir á þá staðreynd að leikmenn CFR Cluj stundi aðeins kynlíf einu sinni í viku. Þess má til gamans geta að þrír leikmenn Steaua hafa verið í kringum rúmenska landsliðshópinn en Rúmenía mætir einmitt Íslandi í umspili um sæti á EM í mars.

„Það er nú bara þannig að leikmennirnir mínir eru að stunda kynlíf of oft með kærustum sínum. Þess vegna hafa þeir ekki spilað vel upp á síðkastið," sagði Becali.

„Ég meina horfði á Dan Petrescu þjálfara Cluj. Leikmennirnir hans fá að stunda kynlíf einu sinni í viku. Ef Floriniel Coman (framherji Steaua) hefði hvíl sig þá veit maður ekki en hann er of upptekinn að gera aðra hluti," sagði hann ennfremur.

Steaua hafnaði í 4. sæti í deildinni en nú tekur við umspil en Cluj var í efsta sætinu eftir 26 leiki með 52 stig.
Athugasemdir
banner
banner