Hákon Þór Sófusson og Víkingur Pálmason hafa báðir ákveðið að taka fram skóna og spila með Fjarðabyggð í 2. deildinni í sumar.
Hákon er fæddur árið 1993 en hann spilaði síðast með Fjarðabyggð árið 2019.
„Hákon Þór er okkur vel kunnugur enda spilaði hann með Fjarðabyggð samtals 142 leiki í deild og bikar og skoraði í þeim 29 mörk," segir á Facebook síðu Fjarðabyggðar.
Víkingur er fæddur árið 1991 en hann spilaði síðast með Fjarðabyggð árið 2017. Á ferli sínum hefur Víkingur skorað 30 mörk í 111 leikjum með Fjarðabyggð.
Víkingur skoraði í fyrsta leik Lengjubikarsins um síðustu helgi gegn Hetti/Huginn.
„Mikil gleðiefni fyrir KFF að fá þennan reynslumikla leikmann til að taka slaginn með okkur," segir á Facebook síðu Fjarðabyggðar.
Fjarðabyggð eru að semja við allt gamla bandið! Hákon Þór í síðustu viku, Víkingur Pálma í þessari #ástríðan
— Ástríðan Podcast (@AstriPodcast) February 25, 2021
Athugasemdir