Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 25. apríl 2019 19:30
Arnar Daði Arnarsson
Líkleg byrjunarlið: Grindavík - Breiðablik
Laugardag klukkan 14:00
Gunnar Þorsteinsson er lykilmaður hjá Grindavík.
Gunnar Þorsteinsson er lykilmaður hjá Grindavík.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Rene Joensen.
Rene Joensen.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Fer Guðjón Pétur beint inn í byrjunarlið Breiðabliks?
Fer Guðjón Pétur beint inn í byrjunarlið Breiðabliks?
Mynd: Fótbolti.net - Arnar Daði Arnarsson
Thomas Mikkelsen.
Thomas Mikkelsen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pepsi-deildin fer af stað í kvöld með leik Vals og Víkings R. á Origo-vellinum klukkan 20:00. 1. umferðin lýkur síðan á laugardaginn með fimm leikjum.

Einn af leikjunum á morgun er leikur Grindavíkur og Breiðabliks sem hefst klukkan 14:00 í Grindavík.



Miklar breytingar hafa orðið á liði Grindavíkur frá síðasta tímabili og miðað við þetta byrjunarlið eru fimm leikmenn í byrjunarliðinu sem ekki voru í Grindavík í fyrra. Auk þess er nýr þjálfari í brúnni, Srdjan Tufegdzic.

Búast má við Grindavík í leikkerfinu 4-3-3 með nýtt miðvarðarpar í þeim Josip Zeba og Marc McAusland. Miðjan þekka Grindvíkingar vel enda léku þeir allir með liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra.

Grindvíkingar hafa ágætis breidd í sóknarlínunni og Alexander Veigar Þórarinsson gæti hæglega byrjað á laugardaginn, í staðin fyrir Patrick N'Koyi eða Vladimir Tufegdzic.



Breiðablik hefur á að skipa gríðarlega sterku liði sem hefur bætt við sig þremur öflugum leikmönnum nú rétt fyrir mót.

Litlar breytingar eru á varnarlínu liðsins frá því í fyrra, Davíð Ingvarsson kemur sennilega inn í vinstri bakvörðinn fyrir nafna sinn, Davíð Kristján Ólafsson sem gekk í raðir Álasund í vetur.

Við búumst við því að Guðjón Pétur komi beint inn í byrjunarliðið og verði þar ásamt Viktori Karli og Andra Yeoman.

Thomas Mikkelsen mun leið sóknarlínu Breiðabliks í sumar. Með honum verða þeir Kwame Quee og Aron Bjarnason. Þórir Guðjónsson og Brynjólfur Darri Willumsson gera einnig tilkall í byrjunarliðið.

Höskuldur Gunnlaugsson gekk í raðir Breiðabliks á láni frá Halmstad í morgun. Hann væri ágætis vopn af varamannabekknum í fyrsta leik, þó það sé hæpið.

föstudagur 26. apríl
20:00 Valur-Víkingur R. (Valsvöllur)

laugardagur 27. apríl
14:00 ÍBV-Fylkir (Hásteinsvöllur)
14:00 Grindavík-Breiðablik (Kópavogsvöllur)
16:00 FH-HK (Kaplakrikavöllur)
16:00 ÍA-KA (Akranesvöllur)
20:00 Stjarnan-KR (Stjörnuvöllur)

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum í Pepsi Max-deildinni!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner