„Manni líður aldrei vel þegar maður fær á sig mark á 90. mínútu og missir unninn leik í jafntefli," segir Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir jafntefli gegn Þór/KA á útivelli í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.
„Við hefðum átt að gera út um leikinn í fyrri hálfleik, en gerðum það ekki. Staðan 1-0 er alltaf viðkvæm staða."
„Við hefðum átt að gera út um leikinn í fyrri hálfleik, en gerðum það ekki. Staðan 1-0 er alltaf viðkvæm staða."
Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 1 FH
Erin Flurey skoraði jöfnunarmark Þórs/KA undir lokin eftir að Thelma Lóa Hermannsdóttir skoraði snemma leiks fyrir FH. Flurey skoraði eftir að Katla María Þórðardóttir rann á slæmum stað á vellinum.
„Við fórum ekki að verja stöðuna fyrr en í lokin, fjölguðum aðeins til baka og gáfum ekki miklar opnanir á okkur. Svona gerist, leikmaður rennur á viðkvæmum stað og við fáum á okkur mark í kjölfarið. Við verðum bara að taka stigið.
„Maður hefði viljað betra forskot inn í hálfleikinn, fórum illa með góðar stöður. Svo verður að horfa á alls konar hluti, fyrsti leikur og alls konar tilfinningar: skrekkur og spenna sem hefur áhrif. Nú er fyrsti leikurinn kominn frá og við búin að koma hingað á erfiðan völl. Nú er það næsti leikur sem er líka á erfiðum útivelli í Laugardalnum."
„Ég hef enga trú á því að stelpurnar finni fyrir aukinni pressu að vera spáð toppbaráttu. Það er ekki tilfinningin sem ég fæ á æfingasvæðinu eða inni í klefa í kringum leikinn. Þetta er bara dæmigerður fyrsti leikur. Það hefði verið gott að ná fyrsta leik frá með þremur stigum," segir Guðni.
























