Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
mánudagur 27. apríl
Besta karla
laugardagur 25. apríl
Lengjudeild karla
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 24. apríl
Championship
Leicester - Millwall - 19:00
Úrvalsdeildin
Sunderland - Nott. Forest - 19:00
1. deild
Brest - Lens - 18:45
Bundesligan
RB Leipzig - Union Berlin - 18:30
Frauen
Nurnberg W - Hamburger W - 16:30
Serie A
Napoli - Cremonese - 18:45
Toppserien - Women
Aalesund W - Rosenborg W - 16:00
La Liga
Betis - Real Madrid - 19:00
Elitettan - Women
Alingsas W - Goteborg W - 17:00
fös 24.apr 2026 12:00 Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 2. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að FH muni enda í öðru sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. FH verður í titilbaráttu ef spáin rætist.

FH fagnar marki á síðasta tímabili.
FH fagnar marki á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðni Eiríksson hér fyrir miðju.
Guðni Eiríksson hér fyrir miðju.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katla María kom heim úr atvinnumennsku fyrir tímabilið í fyrra.
Katla María kom heim úr atvinnumennsku fyrir tímabilið í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ída Marín er búin að taka að sér hlutverk innan A-landsliðsins.
Ída Marín er búin að taka að sér hlutverk innan A-landsliðsins.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingibjörg er mjög spennandi leikmaður.
Ingibjörg er mjög spennandi leikmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Deja Sandoval er áfram í herbúðum FH.
Deja Sandoval er áfram í herbúðum FH.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aldís er búin að jafna sig af meiðslum.
Aldís er búin að jafna sig af meiðslum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Thelma Lóa var mjög öflug á síðustu leiktíð.
Thelma Lóa var mjög öflug á síðustu leiktíð.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andrea Rán leikur með FH í sumar.
Andrea Rán leikur með FH í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arna og Thelma Karen voru seldar í atvinnumennsku síðasta sumar.
Arna og Thelma Karen voru seldar í atvinnumennsku síðasta sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hvað gerir FH í sumar?
Hvað gerir FH í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. FH, 92 stig
3. Víkingur R., 74 stig
4. Stjarnan, 70 stig
5. Þróttur R., 69 stig
6. Valur, 61 stig
7. Þór/KA, 43 stig
8. ÍBV, 34 stig
9. Grindavík/Njarðvík, 21 stig
10. Fram, 17 stig

Um liðið: FH gengur inn í nýtt tímabil í Bestu deild kvenna sem eitt allra sterkasta lið landsins og er spáð 2. sæti. Uppgangurinn í Kaplakrika síðustu ár hefur verið gríðarlegur og liðið hefur stigið skref fyrir skref nær toppnum. Á síðasta tímabili náðu þær sínum besta árangri til þessa þegar liðið endaði í 2. sæti bæði í deild og bikar, og var á köflum ekki langt frá því að veita Breiðabliki alvöru samkeppni um titilinn. FH hefur skapað sér skýra leikímynd þar sem skemmtilegur og áræðinn fótbolti er í fyrirrúmi, sem hefur gert liðið að einu því mest spennandi í deildinni. Verkefnið framundan er þó krefjandi: Að halda áfram þessari þróun og brúa bilið upp í efsta sætið. FH er ekki lengur aðeins á uppleið, þær eru komnar í stöðu þar sem raunhæft er að gera kröfu um titilbaráttu. Ef liðið nær að byggja ofan á þann sterka grunn sem hefur verið lagður og heldur áfram að þróa sinn leikstíl, gæti Kaplakriki orðið heimavöllur Íslandsmeistara í náinni framtíð.

Þjálfararnir: Bræðurnir Guðni og Hlynur Eiríkssynir stýra áfram verkefninu í Kaplakrika. Þeir vinna afskaplega vel saman og hefur það sést á árangri liðsins á undanförnum árum. Guðni tók við sem aðalþjálfari FH árið 2018 og er með mikla reynslu í starfinu. Hlynur kom svo inn í teymið tímabilið 2020. Þeir eru báðir með mikið FH-hjarta og brenna fyrir félagið. Undir þeirra stjórn hefur FH byggt upp skemmtilegan leikstíl og góðan grunn fyrir framhaldið. Núna er spurning hvort þeir geti tekið næsta skref í tröppunni og skilað titlum í hús. Þeir eru allavega mjög metnaðarfullir og vilja allt það besta fyrir félagið sitt.

Álit Magga
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan. Magnús verður með hlaðvarpsþáttinn Uppbótartímann á Fótbolta.net í sumar þar sem farið verður yfir kvennaboltann á Íslandi á mannamáli.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Síðasta skrefið
„Mínir heimildarmenn segja mér að FH liðið hafi aldrei verið eins góðu standi og núna og allir leikmenn eru heilir fyrir fyrsta leik."

„Sterkur kjarni í bland við unga og efnilega leikmenn ásamt sterkum erlendum leikmönnum. Aldis er að snúa aftur í markið og var það mögulega ástæðan fyrir því að FH vann ekki titil á síðustu leiktíð."

„Varnarleikurinn þarf að vera betri og liðið þarf að sýna meiri aga inn á eigin vallarhelming með boltann."

„Eftir að hafa tapað bikarúrslitaleiknum og endað í öðru sæti á þetta FH lið bara eftir að taka síðasta skrefið."


Lykilmenn: Katla María Þórðardóttir og Ída Marín Hermannsdóttir
Katla María kom heim úr atvinnumennsku í fyrra eftir að hafa leikið með Örebro í Svíþjóð. Hún spilaði mjög vel með FH í fyrra og er núna tekin við fyrirliðabandinu. Hún verður leiðtogi fyrir liðið í sumar og þarf að eiga gott sumar inn á vellinum til þess að FH verði í baráttunni um titlana. Ída Marín verður þá í stóru hlutverki í liði FH í sumar en hún hefur tekið frábær skref fram á við síðustu misseri. Ída Marín er komin inn í A-landsliðshópinn og hefur fengið þar gott hlutverk og það segir til um þann stað sem hún er á í dag. Hún fer þá ekki út í háskóla á miðju sumri - eins og síðustu sumur - en það gæti verið að hún fari út í atvinnumennsku fljótlega ef hún heldur rétt á spilunum.

Gaman að fylgjast með: Ingibjörg Magnúsdóttir
Thelma Karen Pálmadóttir var saga sumarsins í Kaplakrika á síðasta ári. Saga þessa sumars gæti verið Ingibjörg Magnúsdóttir. Ingibjörg er gríðarlega efnilegur leikmaður sem kemur inn á kantinn með mikinn hraða, kraft og leikni. Hún hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands og það er aldrei að vita nema hún fylgi í fótspor Thelmu í sumar og springi gjörsamlega út. Fylgist allavega vel með þessum leikmanni í sumar.

Komnar:
Mackenzie Smtih frá Fram
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir frá Haukum
Nia Christopher frá Bandaríkjunum
Helena Errington frá Bandaríkjunum

Farnar:
Thelma Karen Pálmadóttir í Häcken
Arna Eiríksdóttir í Vålerenga
Elísa Lana Sigurjónsdóttir til Kristianstad
Maya Hansen
Macy Elizabeth Enneking
Margrét Brynja Kristinsdóttir í Val
Valgerður Ósk Valsdóttir í Hauka
Harpa Helgadóttir í Fram (lán)



Fyrstu fimm leikir FH:
25. apríl, Þór/KA - FH (VÍS völlurinn)
30. apríl, Þróttur R. - FH (AVIS völlurinn)
6. maí, FH - Grindavík/Njarðvík (Kaplakrikavöllur)
10. maí, Stjarnan - FH (Samsungvöllurinn)
19. maí, FH - ÍBV (Kaplakrikavöllur)

Spámennirnir: Alexander Tonini, Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson, Snæbjört Pálsdóttir, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
banner