„Þetta var helvíti ljúft, fyrri hálfleikur var svolítið spennuþrunginn, menn voru að þreifa og svo settum við í einhvern annan gír í seinni, og kláruðum þetta," sagði Aron Snær Ingason, leikmaður Þróttar Reykjavíkur, eftir sigur á Njarðvík í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 0 Njarðvík
„Við erum að fara vinna ÍR hérna heima í næsta leik, ef mætingin verður svona, þá sé ég það ekki klikka."
Aron Snær var orðaður við Val fyrr í þessum mánuði og sögur af því að Þróttur hafi hafnað háu tilboði í kappann.
„Ég veit að það er einhver áhugi, veit ekkert meira. Þetta er bara á milli félaganna, ég er ekkert að skipta mér að neinu. Það er bara heiður að það sé verið að sýna manni áhuga, það þýðir að maður sé að gera eitthvað rétt," segir Aron Snær.
























