PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Davíð Smári: Kom mér verulega á óvart
Meðvitaður um áhuga Vals - „Þetta er bara á milli félaganna"
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
   lau 25. apríl 2026 16:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var erfitt, við vorum aðeins undir í sóknarleiknum en varnarleikurinn okkar var flottur og við virðum þetta stig," sagði Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur, eftir jafntefli liðsins gegn Vestra á útivelli í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.

Grindavík komst yfir í leiknum en Vestri náði að svara og heimamenn voru ofan á í seinni hálfleik.

Lestu um leikinn: Vestri 1 -  1 Grindavík

„Við vorum aðeins á eftir í að klukka menn, en við vorum þéttir fyrir og það er erfitt að koma hérna og ekki hægt að ætla rúlla yfir einhvern leik hérna. Vestramenn eru þéttir og góðir."

„Við erum nokkuð brattir, erum með 18-20 leikmenn og erum nokkuð góðir. Ég vona að við náum að bæta einum leikmanni við fyrir gluggalok."

„Sumarið leggst vel í mig, við erum með unga leikmenn í bland við reynslumeiri menn. Þetta eru strákar sem eru hungraðir í að fá að spila leiki. Það er frábært að vinna með þeim,"
segir Ray sem væri ekkert á móti einum reynslumeiri leikmanni í liðið og það jafnvel á miðsvæðið miðað við svörin hans í viðtalinu sem má sjá í heild sinni í spilaranum efst.
Slapp
banner
banner