Fotbolti.net
25.05.17 - 13:00
Stefnir Stefánsson

Gary Monk hættur með Leeds (Staðfest)

Gary Monk hættur með Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Leeds

Garry Monk hefur sagt starfi sínu lausu sem knattspyrnustjóri Leeds United. Þetta er einungis tveimur dögum eftir að Ítalski auðkýfingurinn Andrea Radrizzanni eignaðist meirihluta í félaginu sem leikur í Championship deildinni.

Monk var ráðinn til Leeds síðasta sumar og endaði liðið í sjöunda sætinu í Championship deildinni þetta árið. Hársbreidd frá sæti í umspilinu.

Margir bjuggust við að Monk myndi skrifa undir nýjan og betri samning eftir að eigendaskiptin áttu sér stað en það gekk heldur betur ekki eftir.

Í yfirlýsingu frá félaginu stóð meðal annars „Við erum í sárum yfir þessari ákvörðun Garry, en það er enginn einstaklingur stærri heldur en félagið.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.