Fotbolti.net
25.05.18 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Ross tekur við Sunderland (Staðfest)

Sunderland hefur verið í brasi undanfarið .

Sunderland hefur verið í brasi undanfarið .

Canon

Mynd: Getty Images

Jack Ross hefur verið ráðinn stjóri Sunderland en félagið tilkynnti þetta í dag.

Ross er 41 árs gamall en hann kom St Mirren upp í skosku úrvalsdeildina á dögunum.

Fyrir vikið var hann valinn stjóri ársins í skosku B-deildinni.
Ross á að reyna að rétta skútuna við hjá Sunderland eftir skelfilegt ár.

Liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra og svo aftur úr Championship deildinni á dögunum. Chris Coleman, stjóri liðsins, var rekinn í kjölfarið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.