Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 25. maí 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Setja kröfu á sigur gegn Kára - „Helling sem við þurfum að bæta"
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

FH hefur farið hægt af stað í Bestu deildinni í ár en liðið er í 7. sæti með sjö stig og hefur aðeins unnið einn leik af síðustu fimm.


Liðið tapaði um helgina fyrir Keflavík á útivelli en Matthías Vilhjálmsson var til viðtals hjá Fótbolta.net eftir leikinn.

„Þurfum bara að fara yfir það sem betur má fara því það er helling sem við þurfum að bæta, sóknarlega og varnarlega," sagði Matthías.

Liðið hefur leik í Mjólkurbikarnum í dag þegar liðið fær 3. deildar lið Kára í heimsókn í Kaplakrika í 32 liða úrslitum. Matthías er harð ákveðinn í því að sigra þann leik.

„Setjum þá kröfu á okkur að vinna á móti Kára."

Eins og fyrr segir fer leikurinn fram í Kaplakrika og hefst klukkan 19:15.


Matti Vill: Við erum bara ekki betri en þetta
Athugasemdir
banner
banner