Fotbolti.net
25.06.26 - 22:19
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarliðin á HM: Ake í vörn Hollendinga - Þrjár breytingar hjá Svíum

Nathan Ake kemur inn í vörn Hollands

Nathan Ake kemur inn í vörn Hollands

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

F-riðill heimsmeistaramótsins klárast í kvöld en Japan mætir Svíþjóð á meðan Holland spilar við Túnis. Leikirnir hefjast klukkan 23:00 og eru í beinni textalýsingu á Fótbolti.net.
Ein breyting er gerð á liði Hollands fyrir leikinn gegn Túnis. Nathan Ake kemur inn í vörnina í stað Micky van de Ven.

Hollendingar eru í góðri stöðu á toppi riðilsins með fjögur stig en þurfa að klára sitt gegn Túnis, sem er án stiga.

Þrjár breytingar eru á liði Svíþjóðar fyrir leikinn gegn Japan. Jacob Zetterström kemur inn í markið eftir að Kristoffer Nordfeldt fékk á sig fimm mörk í síðasta leik gegn Hollandi.

Elliott Stroud kemur inn fyrir Jesper Karlström og Anthony Elanga byrjar í stað Benjamin Nygren.

Japan gerir einnig þrjár breytingar. Ayumu Seko, Yukinari Sugawara og Daizen Maeda koma inn fyrir Takehiro Tomiyasu, Kaishu Seno og Junya Ito.

Japan er í öðru sæti riðilsins með fjögur stig og dugir jafntefli til að fara áfram. Svíþjóð er í þriðja sæti með þrjú stig og þarf því sigur.

Holland: Verbruggen, Van Dijk, Ake, Van Hecke, Dumfries, Gravenberch, Reijnders, De Jong, Gakpo, Malen, Brobbey

Túnis: Dahmen, Abdi, Talbi, Valery, Ben Hamida, Mejbri, Gharbi, Khedira, Skhiri, Slimane, Mastouri



Svíþjóð: Zetterstrom; Lagerbielke, Hien, Lindelof; Bernhardsson, Ayari, Stroud, Gudmundsson; Elanga; Gyokeres, Isak.

Japan: Suzuki; Seko, Itakura, H. Ito; Sugawara, Kamada, Tanaka, Nakamura; Doan, Maeda; Ueda.
Zetterström er í marki Svía

Zetterström er í marki Svía

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.