Fotbolti.net
25.06.26 - 18:02
Brynjar Ingi Erluson

Landsliðsmenn æfa með ÍA

Jón Gautur Hannesson tók myndir af landsliðsmönnunum á æfingu Skagamanna

Jón Gautur Hannesson tók myndir af landsliðsmönnunum á æfingu Skagamanna

Canon

Mynd: ÍA/Jón Gautur

Landsliðsmennirnir Ísak Bergmann Jóhannesson, Hákon Arnar Haraldsson og Stefán Teitur Þórðarson æfa þessa dagana með uppeldisfélagi sínu, ÍA.
Leikmennirnir eru allir í sumarfríi eftir langt og strangt tímabil í Evrópuboltanum.

Hákon Arnar er á mála hjá Lille, sem tryggði sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð, en Ísak og Stefán spila báðir í Þýskalandi. Ísak leikur með Köln, sem er í efstu deild, á meðan Stefán er hjá Hannover í B-deildinni.

Þremenningarnir eru nú allir komnir upp á Akranes þar sem þeir halda sér í formi áður en þeir snúa aftur til félagsliða sinna.

ÍA birti myndir af þeim á æfingu í dag en Jón Gautur Hannesson tók myndirnar sem Skagamenn birtu á Facebook.

„Sumarið færir okkur atvinnumennina heim. Stefán Teitur, Hákon Arnar og Ísak Bergmann halda sér í formi á æfingum með strákunum okkar. Heima er best,“ er skrifað við færslu Skagamanna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.