Verður ekki dýrari en Isak

Elliot Anderson er á leið til Man City

Mynd: EPA

Elliot Anderson er á leið til Man City

Mynd: EPA
Elliot Anderson verður ekki dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, samkvæmt nýjustu upplýsingum frá helstu blaðamönnum Englands og Fabrizio Romano.

TENGT EFNI
Anderson til Man City - Verður sá dýrasti í sögu deildarinnar
Fyrr í kvöld var greint frá því að Manchester City hefði náð samkomulagi við Nottingham Forest um kaup á Anderson.
Þá var talað um 130 milljóna punda kaupverð sem hefði gert Anderson að dýrasta leikmanni í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og slegið metið frá því í fyrra, þegar Liverpool keypti Alexander Isak frá Newcastle United fyrir 125 milljónir punda.
David Ornstein hjá Athletic og Fabrizio Romano segja nú að kaupverðið sé 116 milljónir punda og að engar viðbótargreiðslur séu í samkomulaginu.
Anderson verður því ekki dýrasti leikmaður í sögu deildarinnar en hann verður dýrasti Breti sögunnar. Þar tekur hann metið af Declan Rice, sem fór frá West Ham til Arsenal fyrir 105 milljónir punda árið 2023.
Jack Grealish er enn dýrustu kaup Manchester City, en hann kom frá Aston Villa fyrir 100 milljónir punda árið 2021. Anderson mun taka það met af honum á næstu dögum.