Fotbolti.net
25.06.26 - 18:59
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarliðin á HM: Tvær breytingar hjá Þjóðverjum - Fílabeinsströndin stokkar upp í vörninni

Fílabeinsströndin mætir Curacao á meðan Þýskaland spilar við Ekvador

Fílabeinsströndin mætir Curacao á meðan Þýskaland spilar við Ekvador

Canon

Mynd: EPA

Í kvöld kemur í ljós hvaða þjóð fylgir Þýskalandi upp úr E-riðli og í 32-liða úrslit heimsmeistaramótsins. Þýskaland mætir Ekvador á sama tíma og Fílabeinsströndin spilar við Curacao, en leikirnir hefjast klukkan 20:00.
Þýskaland er með fullt hús stiga og þegar komið áfram, en Ekvador þarf sigur og þarf um leið að vonast til þess að Fílabeinsströndin misstígi sig.

Það er þó ekki það eina sem er undir hjá Ekvador. Átta lið með bestan árangur í þriðja sæti fara áfram og staðan hjá Moises Caicedo og félögum er því einföld: sigur eða ekkert.

Engar stórar breytingar eru á liði Þjóðverja. David Raum kemur inn í vinstri bakvörðinn í stað Browns og Antonio Rüdiger kemur inn í miðja vörnina fyrir Nico Schlotterbeck, sem er meiddur.

Joel Ordonez og Nilson Angulo koma inn hjá Ekvador í stað Pervis Estupinan og Jordy Alcivar.

Ekvador er með aðeins eitt stig í þriðja sæti riðilsins.

Fílabeinsströndin mætir nýliðum Curacao í hinum leik riðilsins. Stig mun duga Fílabeinsströndinni til að komast áfram, en það er ekki síður mikið undir hjá Curacao sem gæti sömuleiðis farið áfram með sigri.

Fjórar breytingar eru gerðar á liði Fílabeinsstrandarinnar. Nicolas Pepe, Ousmane Diomande, Christopher Operi og Guela Doue koma inn í stað Wilfried Singo, Emmanuel Agbadou, Ghislain Konan og Christ Inao Oulai. Þrjár varnarbreytingar hjá þeim.

Dick Advocaat, þjálfari Curacao, heldur sig við sama lið og gerði markalaust jafntefli við Ekvador í síðustu umferð.

Curacao: Room, Gaari, Floranus, Obispo, Brenet, Fonville, J. Bacuna, Comenencia, L. Bacuna, Chong, Locadia

Fílabeinsströndin: Fofana, O. Diomande, Kossounou, Operi, Doue, Kessie, Sangare, Bonny, Y. Diomande, Diallo, Pepe



Þýskaland: Manuel Neuer; Joshua Kimmich, Antonio Rüdiger, Jonathan Tah, David Raum; Aleksandar Pavlovic, Felix Nmecha; Leroy Sané, Kai Havertz, Jamal Musiala; Florian Wirtz

Ekvador: Hernán Galíndez; Alan Franco, Piero Hincapié, Willian Pacho, Joel Ordónez; Pedro Vite, Moisés Caicedo, John Yeboah; Gonzalo Plata, Enner Valencia, Nilson Angulo
Eloy Room var stórkostlegur í síðustu umferð en getur hann endurtekið leikinn?

Eloy Room var stórkostlegur í síðustu umferð en getur hann endurtekið leikinn?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.