Helgi óánægður með frammistöðuna - „Hann er besta vítaskytta sögunnar“
Auglýsing

Frá fyrra marki Helga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Frá fyrra marki Helga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Við komum ekki oft hingað og vinnum stórt. Það er mjög sterkt. En mér fannst við ekki góðir í dag og ólíkir sjálfum okkur. Það er margt sem við getum bætt fyrir sunnudaginn,“ sagði Helgi Guðjónsson, leikmaður Víkings, eftir 1-4 útisigur liðsins á Breiðabliki.
Helgi skoraði tvö mörk í leiknum, hann segist sjálfur hafa verið þokkalegur í kvöld.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 4 Víkingur R.
„Það er fínt að skora, alltaf gaman. Maður var þokkalegur í kvöld, en ég hefði vissulega getað gert margt betur líka. Alltaf gott að skora og hjálpa liðinu þannig.“
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði úr vítaspyrnu í síðari hálfleik og kom Víkingum í 3-0, Helgi skoraði skömmu síðar sitt annað mark og hefði hann tekið vítaspyrnuna væri hann með þrjú. Þeir hafa báðir verið að deila ábyrgðinni á punktinum.
„Gylfi fékk að taka þetta í dag,“ aðspurður um hvers vegna segir Helgi svarið einfalt; „Við töluðum bara saman og erum að skipta þessu bróðurlega á milli okkar. Hann er auðvitað besta vítaskytta sögunnar þannig við splittum þessu,“ sagði Helgi að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.