Fotbolti.net
25.06.26 - 20:30
Brynjar Ingi Erluson

Setur þarfir sonar síns í fyrsta sæti - „Það er okkur ótrúlega mikilvægt“

Marc Cucurella

Marc Cucurella

Canon

Mynd: EPA

Spænski bakvörðurinn Marc Cucurella segist setja þarfir sonar síns í fyrsta sæti þegar félagaskipti koma til greina, en hann ræddi þetta á blaðamannafundi í gær.
Cucurella er genginn í raðir Real Madrid frá Chelsea, en félagaskiptin gengu hratt fyrir sig og Spánverjinn var ekki í neinum vafa þegar Madrídingar bönkuðu upp á.

Hann segir þó að margt þurfi að taka með í reikninginn áður en hann flytur með fjölskyldu sína á nýjan stað.

„Ég held að allir viti það nú þegar að sonur minn er með einhverfu. Það breytti ekki lífi mínu heldur fékk það mig til að kunna betur að meta hlutina.“

„Ég myndi ekki semja við félag ef ég gæti ekki fundið skóla eða meðferðarúrræði sem henta syni mínum. Fjölskyldan er í fyrsta sæti og þetta er okkur ótrúlega mikilvægt,“
sagði Cucurella.

Hann tók einnig fram að Barcelona hefði aldrei sýnt sér áhuga.

„Það var enginn áhugi frá Barcelona en Atlético sýndi áhuga. Það mikilvægasta er að þetta er klappað og klárt. Ég mun spila með Real Madrid, við ætlum okkur að vinna titla á ný og auðvitað vil ég njóta upplifunarinnar,“ sagði Cucurella.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.