Fotbolti.net
25.06.26 - 18:19
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd lánar Onana aftur

Man Utd lánar Onana aftur
Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur samþykkt að lána kamerúnska markvörðinn Andre Onana aftur til tyrkneska félagsins Trabzonspor.
Þessi þrítugi markvörður er ekki hluti af framtíðaráætlunum Man Utd.

Onana kom til félagsins frá Inter árið 2023 en upplifði erfiða tíma undir stjórn Erik ten Hag áður en hann var lánaður til Trabzonspor á síðustu leiktíð.

Tyrkneska félagið var ánægt með Onana, sem hélt sex sinnum hreinu í 33 leikjum með liðinu.

Blaðamaðurinn Yagiz Sabuncuoglu segir Trabzonspor hafa náð munnlegu samkomulagi við United um að fá Onana aftur að láni, en enn eigi eftir að ganga frá lánsgjaldi og öðrum lausum endum.

Fabrizio Romano vitnar í Sabuncuoglu, sem er talinn einn áreiðanlegasti íþróttafréttamaður Tyrklands.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.