Fotbolti.net
25.06.26 - 19:48
Brynjar Ingi Erluson

Arsenal kannar stöðuna á Guimaraes

Arsenal kannar stöðuna á Guimaraes
Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal eru í viðræðum við föruneyti brasilíska miðjumannsins Bruno Guimaraes.
Guimaraes, sem er 28 ára gamall og hefur verið fyrirliði Newcastle frá árinu 2024, er talinn einn besti miðjumaður ensku úrvalsdeildarinnar.

Brasilíumaðurinn hefur ekki gefið til kynna að hann vilji fara frá Newcastle í glugganum, en hann er engu að síður á óskalista hjá mörgum félögum á Englandi.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vill styrkja miðjuna og samkvæmt Craig Hope hjá Daily Mail hefur Arsenal sett sig í samband við föruneyti Guimaraes.

Newcastle er undirbúið undir að fá tilboð frá Arsenal í Brasilíumanninn, sem á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið.

Guimaraes kom til Newcastle frá Lyon árið 2022, en áður spilaði hann með Athletico Paranaense í heimalandinu. Hann á 46 landsleiki og 3 mörk fyrir brasilíska landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.