Fotbolti.net
25.06.26 - 18:01
Brynjar Ingi Erluson

Landsliðsskórnir á hilluna eftir vonbrigðin

Landsliðsskór Schick eru komnir upp í hillu

Landsliðsskór Schick eru komnir upp í hillu

Canon

Mynd: EPA

Framherjinn Patrik Schick hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir að Tékkland féll úr leik á heimsmeistaramótinu í gær.
Schick, sem er aðeins þrítugur, hefur verið aðalmaðurinn í sóknarleik Tékka síðustu ár og skorað 26 mörk í 56 landsleikjum, en nú hefur hann ákveðið að láta staðar numið.

Tékkar töpuðu 3-0 fyrir gestgjöfum Mexíkó í lokaleik sínum í A-riðli og fóru heim með aðeins eitt stig.

„Þetta var vegferð full af tilfinningum, gleði, vonbrigðum, sigrum og erfiðum augnablikum. Ég reyndi alltaf að gera mitt besta með landsliðinu og vera góður fulltrúi þjóðarinnar.“

„Tékkneskur fótbolti er fær um miklu meira en hann hefur sýnt síðustu ár. Við þurfum að horfast í augu við sannleikann og breyta mörgu sem hefur ekki virkað til lengri tíma. Ég er ekki að segja þetta af reiði eða vonbrigðum. Ég er að segja þetta vegna þess að mér er annt um tékkneskan fótbolta,“
sagði Schick.

Schick var stórkostlegur á Evrópumótinu árið 2021 þar sem hann endaði markahæstur ásamt Cristiano Ronaldo. Eitt marka hans á mótinu var valið það flottasta og var einnig tilnefnt til Puskas-verðlaunanna.

Hann er markahæsti Tékki í sögu EM og hefur verið landsliðinu gríðarlega mikilvægur síðustu ár. Hans verður því sárt saknað í tékkneska landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.