25.07.19 - 16:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arsenal kaupir William Saliba (Staðfest)
Lánaður aftur til St. Etienne

Mynd: Arsenal

Mynd: Arsenal
Arsenal er búið að kaupa varnarmanninn William Saliba frá St. Etienne. Sagan segir að kaupverðið sé 27 milljónir punda.
Saliba leikur ekki með Arsenal á næstu leiktíð. Hann verður lánaður aftur til St. Etienne í Frakklandi.

Tottenham var einnig sagt hafa áhuga á Saliba en það var Arsenal sem vann baráttuna um hann.
Saliba er fæddur 2001 og er því 18 ára gamall. Á síðasta tímabili lék hann 19 leiki í öllum keppnum fyrir aðallið St. Etienne. Hann á að baki marga leiki fyrir yngri landslið Frakklands.
„Við erum hæstánægðir með að fá William. Mörg félög vildu fá hann en hann valdi að koma hingað og vera hluti af okkar framtíð," sagði Unai Emery, stjóri Arsenal.
Hann er annar leikmaðurinn sem kemur til Arsenal í dag. Hinn leikmaðurinn er miðjumaðurinn Dani Ceballos.

✅ Dani Ceballos
— Squawka News (@SquawkaNews) July 25, 2019
✅ William Saliba
Arsenal have confirmed their second signing of the day. pic.twitter.com/ByiNjZP1sB