Fotbolti.net
25.07.19 - 14:18
Elvar Geir Magnússon

Douglas Luiz til Aston Villa (Staðfest)

Douglas Luiz.

Douglas Luiz.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni hafa keypt brasilíska miðjumanninn Douglas Luiz frá Manchester City á 15 milljónir punda.

Hann er tíundi leikmaðurinn sem Villa fær í sumar.

Luiz er 21 árs og kom til City frá Vasco de Gama 2017. Hann náði aldrei að spila leik fyrir Englandsmeistarana.

Hann var síðustu tvö tímabil á láni hjá Girona þar sem hann lék 46 leiki.
„Douglas er gríðarlega hæfileikaríkur ungur leikmaður sem ég er viss um að muni smellpassa í okkar leikstíl," segir Dean Smith, stjóri Villa.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.