Fotbolti.net
25.07.19 - 12:43
Elvar Geir Magnússon

Elías Rafn lánaður til Aarhus Fremad (Staðfest)

Elías Rafn Ólafsson.

Elías Rafn Ólafsson.

Canon

Mynd: UEFA.com

Danska C-deildarliðið Aarhus Fremad hefur fengið Elías Rafn Ólafsson lánaðan frá Midtjylland. Um er að ræða eins árs lánssamning.

Þessi 19 ára markvörður varð danskur U19 meistari á síðasta tímabili og vakti frammistaða hans í Evrópukeppni unglingaliða mikla athygli. Midtjylland sló út Roma og Manchester United í keppninni.
Elías var hjá Breiðabliki áður en hann hélt til Danmerkur. Hann er í U21-landsliði Íslands og hefur leikið tvo leiki fyrir liðið.

Íþróttastjóri Midtjylland, Svend Graversen, segir að Elías hafi þróast frábærlega hjá félaginu og það muni halda áfram með reglulegum spiltíma hjá Aarhus Fremad.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.