Fotbolti.net
25.07.19 - 09:05
Magnús Már Einarsson

Lookman til RB Leipzig (Staðfest)

Lookman til RB Leipzig (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið RB Leipzig hefur keypt kantmanninn Ademola Lookman frá Everton á 22,5 milljónir punda.

Hinn 21 árs gamli Lookman var á láni hjá Leipzig síðari hluta tímabils 2017/2018 en þá skoraði hann fimm mörk í ellefu leikjum.

Lepzig hefur nú tryggt sér þjónustu hans næstu fimm árin.
Leipzig vildi upphaflega kaupa Lookman í fyrra en þá vildi Everton ekki selja.

Lookman kom til Everton frá Charlton í janúar 2017 en hann lék samtals 48 leiki með liðinu á ferli sínum þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.