Fotbolti.net
25.07.19 - 16:33
Elvar Geir Magnússon

Morten Beck genginn í raðir FH (Staðfest)

Morten Beck er mættur í Kaplakrika.

Morten Beck er mættur í Kaplakrika.

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Morten Beck Guldsmed er genginn í raðir FH. Þessi 31 árs danski leikmaður kemur frá Viborg FF í Danmörku.

Þegar hann lék hér síðast hét hann Morten Beck Andersen en hann lék með KR sumarið 2016.

Eftir tímabilið á Íslandi skrifaði hann undir hjá FC Fredericia í dönsku B-deildinni þar sem hann skoraði sex mörk í 13 leikjum. Eftir hálft ár þar gekk hann í raðir Viborg, en fyrr í sumar varð hann laus allra mála þaðan.

FH reyndi að fá Kristján Flóka Finnbogason frá Start. Kristján Flóki er uppalinn FH-ingur, en ákvað að ganga í raðir KR frekar. Nú virðist FH vera að fá fyrrum framherja KR.

FH hefur ollið vonbrigðum í sumar og tapaði síðasta deildarleik sínum 2-0 gegn HK. FH er í sjötta sæti Pepsi Max-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.