25.07.19 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Obiang til Sassuolo (Staðfest)

Obiang fagnar marki með West Ham.

Mynd: Getty Images

Obiang fagnar marki með West Ham.

Mynd: Getty Images
West Ham hefur selt miðjumanninn Pedro Obiang til Sassuolo í Serie A á Ítalíu.
Kaupverðið hljóðar upp á 7,2 milljónir punda.
Hinn 27 ára gamli Obiang kom til West Ham frá Sampdoria árið 2015 og skoraði þrjú mörk í 116 leikjum með Hömrunum.
Kaupverðið hljóðar upp á 7,2 milljónir punda.
Hinn 27 ára gamli Obiang kom til West Ham frá Sampdoria árið 2015 og skoraði þrjú mörk í 116 leikjum með Hömrunum.
Obiang er áttundi leikmaðurinn sem fer frá West Ham í sumar en áður höfðu Adrian, Sam Byram, Edimilson Fernandes, Samir Nasri, Marko Arnautovic, Lucas Perez og Andy Carroll farið frá félaginu.
