25.07.19 - 11:21
Arnar Daði Arnarsson
Stefán Ragnar í Fram (Staðfest)

Stefán Ragnar kemur frá Berserkjum.

Mynd: Magnús Valur Böðvarsson

Stefán Ragnar kemur frá Berserkjum.

Mynd: Magnús Valur Böðvarsson
Varnarmaðurinn, Stefán Ragnar Guðlaugsson hefur gengið í raðir Fram í Inkasso-deildinni. Frá þessu er greint á Facebook-síðu fram.
Stefán Ragnar hefur leikið með Berserkjum í 4. deildinni í sumar þar sem hann hefur skorað fimm mörk í tíu leikjum. Hann lék 20 leiki með uppeldisfélagi sínu Selfossi í Inkasso-deildinni í fyrra er liðið féll niður í 2. deildina.

Hann á að baki 191 leiki með meistaraflokki hér á landi með Selfossi, Berserkjum, Val, Fylki og ÍBV.
Fram situr í 6. sæti Inkasso-deildarinnar með 20 stig, sex stigum á eftir Þór sem er í 2. sæti deildarinnar. Fram fer í Hafnarfjörðinn í kvöld og mætir þar Haukum í 14. umferðinni.
Stefán Ragnar er ekki enn kominn með félagaskipti og því óljóst hvort hann leiki með liðinu gegn Haukum í kvöld.
fimmtudagur 25. júlí
Inkasso deildin - 1. deild karla
19:15 Njarðvík-Leiknir R. (Rafholtsvöllurinn)
19:15 Víkingur Ó.-Þróttur R. (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 Haukar-Fram (Ásvellir)
19:15 Afturelding-Keflavík (Varmárvöllur - gervigras)