25.08.17 - 15:10
Magnús Már Einarsson
Dembele til Barcelona á risa upphæð (Staðfest)
Næstdýrastur í sögunni

Dembele verður í treyju númer 11.

Mynd: Getty Images

Dembele verður í treyju númer 11.

Mynd: Getty Images
Barcelona hefur staðfest að framherjinn Ousmane Dembele sé kominn félagsins frá Borussia Dortmund.
Félögin hafa náð samkomulagi um kaupverð upp á 105 milljónir evra (97 milljónir punda) en allt að 42 milljónir evra (38,7 milljónir punda) gætu bæst við ef Dembele stendur sig vel hjá Barcelona.
Það þýðir að Dembele verður næstdýrasti leikmaður sögunnar á eftir Neymar sem fór frá Barcelona til PSG á 222 milljónir evra (200 milljónir punda) í sumar.
Hinn tvítugi Dembele skrifar undir fimm ára samning hjá Barcelona.
Dembele kom til Dortmund frá Rennes í fyrrasumar. Eftir að Barcelona sýndi honum áhuga á dögunum þá lét Dembele sig hverfa en hann mætti ekki á æfingar hjá Dortmund.
Þessi ungi Frakki hefur nú fengið ósk sína uppfyllta með því að ganga í raðir Barcelona.

👋 Benvingut @Dembouz!
— FC Barcelona (@FCBarcelona) August 25, 2017
👋 ¡Bienvenido Dembélé!
👋 Welcome Dembélé!
👋 Bienvenue Dembélé!
🔵🔴 #BeBarça pic.twitter.com/gTl0YXCEd6
The shirt number for @Dembouz is… pic.twitter.com/ShAbkc444o