Fotbolti.net
25.08.17 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Oliver Burke til WBA (Staðfest)

Sáttur með félagaskiptin.

Sáttur með félagaskiptin.

Canon

Mynd: Getty Images

WBA hefur keypt skoska kantmanninn Oliver Burke frá RB Leipzig í Þýskalandi.

Hinn tvítugi Burke varð dýrasti skoski leikmaðurinn frá upphafi þegar Leipzig keypti hann á þrettán milljónir punda frá Nottingham Forest fyrir ári síðan.

Burke spilaði 25 leiki þegar Leipzig endaði í öðru sæti í þýsku Bundesligunni á síðasta tímabili en hann kom oftast inn á sem varamaður.
Burke er nú mættur aftur til Englands en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

„Mér finnst vera kominn tími á að fá meiri spiltíma,\" sagði Burke eftir að hann skrifaði undir fimm ára samning við WBA.

🎥 Red Bull gives you wingers...#WBA pic.twitter.com/iMN14iPphP

— West Bromwich Albion (@WBA) August 25, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.