Fotbolti.net
25.08.17 - 16:50
Magnús Már Einarsson

Snodgrass til Aston Villa á láni (Staðfest)

Snodgrass til Aston Villa á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur fengið skoska kantmanninn Robert Snodgrass á láni frá West Ham út tímabilið. Fleiri félög í Championship vildu fá Snodgrass en hann valdi Aston Villa.

„Ég vil taka þátt í ferðalaginu aftur upp í ensku úrvalsdeildina,\" sagði Snodgrass.
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er á mála hjá Aston Villa og hann fær ennþá meiri samkeppni í öflugum leikmannahópi liðsins með komu Snodgrass.

Hinn 29 ára gamli Snodgrass var í lykilhlutverki hjá Hull áður en West Ham keypti hann í byrjun árs á 10,2 milljónir punda.

Dvöl hans hjá West Ham hefur ekki gengið að óskum og Snodgrass fékk í síðustu viku þau skilaboð að hann mætti fara frá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.