Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 25. ágúst 2019 15:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Danmörk: Kjartan Henry skoraði tvö í sigri Vejle - Ingvar hélt hreinu
Kjartan Henry skoraði tvö í dag.
Kjartan Henry skoraði tvö í dag.
Mynd: Getty Images
Tveir Íslendingar voru í lykilhlutverkum hjá sínum liðum í dönsku B-deildinni í dag.

Kjartan Henry Finnbogason var í byrjunarliði Vejle sem mætti Skive á heimavelli í dag. Kjartan gerði bæði mörkin í 2-1 sigri.

Ingvar Jónsson varði þá mark Viborg gegn Nykobing á heimavelli. Ingvar lék allan leikinn og hélt hreinu í 3-0 sigri.

Viborg er á toppnum í deildinni með fjórtan stig eftir sex umferðir. Vejle er í fimmta sæti með átta stig.

Vejle 2 -1 Skive

Viborg 3 - 0 Nykobing


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner