Pepsi Max-deildin: Bragðdauft hjá KA og KR

Óskar Örn fékk fínasta færi til að skora undir lok fyrri hálfleiks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA tekur væntanlega stigið fegins hendi.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KA 0 - 0 KR
Lestu nánar um leikinn
Lestu nánar um leikinn
Það var boðið upp á afar bragðdaufan fótboltaleik þegar KA og KR mættust í Pepsi Max-deildinni í dag. Leikurinn fór fram á Greifavellinum á Akureyri.
Magnús Valur Böðvarsson, vallarstjóri hjá KR, birti GIF á Twitter þar sem hann súmmeraði fyrri hálfleikinn.
Seinni hálfleikurinn var ekki mikið skárri. „Leikurinn í sömu járnum og í fyrri hálfleik. Lítið af færum og liðin föst fyrir. Mark væri asni vel þegið," skrifaði Ester Ósk Árnadóttir í beinni textalýsingu þegar rúmar 20 mínútur voru eftir.
Lokatölur voru 0-0 og eitt stig á bæði lið. KR er á toppnum með 40 stig, 10 stigum meira en Breiðablik sem er í öðru sæti. KA er í níunda sæti með 21 stig, þremur stigum frá fallsæti.
Klukkan 19:15 hefst leikur Víkings og Grindavíkur. Bein textalýsing frá þeim leik.

Hálfleikur í leik KA og KR. Hér má sjá helstu atriði leiksins pic.twitter.com/boyVsXqbNH
— magnus bodvarsson (@zicknut) August 25, 2019