25.09.19 - 10:00
Hafliði Breiðfjörð
Jasmín Erla á lán til Apollon Limassol (Staðfest)

Jasmín í leik með Stjörnunni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jasmín í leik með Stjörnunni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan hefur samið við Apollon Limassol á Kýpur um að lána Jasmín Erlu Ingadóttur til síðarnefnda liðsins til 31. mars 2020. Stjarnan á þó rétt á að kalla leikmanninn úr láni eftir 15. janúar.
Einar Páll Tamimi, formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar, sagði að Stjarnan legði nú aukna áherslu á að nýta alþjóðleg tengsl sín til þess að leikmenn félagsins fengju verkefni við hæfi erlendis utan keppnistímabilsins á Íslandi.
„Að sjálfsögðu eru möguleikar okkar á að koma leikmönnum í svona verkefni háðir stöðu þeirra hér á landi, en nám og störf þeirra geta staðið því í vegi að þeir geti hleypt heimdraganum með þessum hætti, að ekki sé talað um ungan aldur," sagði Einar Páll.
„Hér kom upp sú staða að eitt af þeim fjölmörgu erlendu félögum sem við eigum í sterku sambandi við leitaði til okkar um aðstoð við að útvega sér hágæða miðjumann. Við vorum svo heppin að hafa einmitt slíkan leikmann innan okkar raða.“
Jasmín Erla gekk í raðir Stjörnunnar frá FH síðastliðinn vetur og spilaði 19 leiki með liðinu í deild og bikar í sumar og skoraði 5 mörk. Hún er 21 árs og hefur spilað 21 leik fyrir yngri landslið Íslands.
„Mjög óvænt hafði formaður meistaraflokksráðs samband við mig fyrir nokkrum dögum síðan og sagði mér að Stjarnan gæti boðið mér að fara á lán til Kýpur í vetur," sagði Jasmín Erla sem flýgur út á morgun.
„Ég sá að liðið sem um var að ræða hefur verið sterkasta lið Kýpur undanfarin ár og margoft spilað í aðalkeppni Meistaradeildar Evrópu. Ég þurfti því ekki að hugsa mig lengi um og kem vafalaust til baka sem sterkari leikmaður í vor."
Stjarnan boðar að frekari frétta af nýtingu erlendra sambanda félagsins leikmönnum félagsins til hagsbóta sé að vænta á næstu dögum.