Fotbolti.net
25.09.19 - 13:02
Magnús Már Einarsson

Natasha Anasi áfram hjá Keflavík (Staðfest)

Natasha Anasi áfram hjá Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Natasha Anasi, fyrirliði Keflavíkur, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.

Keflavík féll úr Pepsi Max-deildinni á dögunum en Natasha ætlar að taka slaginn áfram með liðinu í Inkasso-deildinni.
Hin 27 ára gamla Natasha hefur verið lykilmaður hjá Keflavíkur undanfarin ár en hún var kosin best hjá liðinu í sumar.

Natasha, sem getur spilað margar stöður á vellinum, var fimm sinnum valin í lið umferðarinnar hjá Fótbolta.net í sumar.

„Það er mikill fengur að halda slíkum leiðtoga og reynslubolta hjá félaginu og er liður í því verkefni að koma stelpunum strax aftur upp í deild þeirra bestu. Hún er ekki eingöngu góður liðsmaður heldur mikilvæg fyrirmynd fyrir kvennaknattspyrnuna á Suðurnesjum en hún mun einnig þjálfa ungar upprennandi fótboltastelpur hjá félaginu," segir á Facebook síðu knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.