Fotbolti.net
25.10.18 - 17:22
Elvar Geir Magnússon

Laugi bætist við þjálfarateymi FH (Staðfest)

Laugi bætist við þjálfarateymi FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðlaugur Baldursson er kominn aftur í þjálfarateymi FH og aðstoðar Ólaf Kristjánsson á næsta tímabili.

Ásmundur Haraldsson verður einnig aðstoðarþjálfari og stækkar teymið því.
Ásmundur hefur skrifað undir framlengingu á sínum samningi rétt eins og Eiríkur Þorvarðarson markvarðaþjálfari.

Guðlaugur var aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá FH en í sumar stýrði hann Keflavík. Hann lét af störfum um mitt sumar en liðinu tókst ekki að vinna deildarleik á tímabilinu.

FH endaði í fimmta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar og missti af Evrópusæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.