25.10.19 - 14:04
Magnús Már Einarsson
Alexander Már í Fram (Staðfest) - Gunnar framlengir

Alexander Már og Jón Þ. Sveinsson þjálfari Fram.

Mynd: Fram

Fram hefur fengið framherjann Alexander Má Þorláksson í sínar raðir frá KF. Alexander skrifaði undir tveggja ára samning við Fram.
„Knattspyrnudeild Fram er mjög ánægð með að hafa tryggt sér starfskrafta Alexanders Más næstu tvö árin hið minnsta og það verður gaman að fylgjast með honum hrella varnarmenn og markverði andstæðinganna," segir á heimasíðu Fram.
Alexander Már var langmarkahæstur í 3. deildinni í ár með 28 mörk í 21 leik. Alexander hjálpaði KF upp um deild með mörkum sínum.
Alexander til hjá Fram en hann spilaði með liðinu í Pepsi-deildinni árið 2014. Síðan þá hefur hinn 24 ára gamli Alexander spilað með KF, Hetti, ÍA og Kára.
Þá hefur varnarmaðurinn Gunnar Gunnarsson gert nýjan tveggja ára samning við Fram. Gunnar kom til Fram frá Þrótti í júlí síðastliðnum.
„Mikil ánægja var með frammistöðu Gunnars í Frambúningnum og því mikið gleðiefni að hann hafi ákveðið að taka slaginn með liðinu næstu tvö árin," segir á heimasíðu Fram.
Fyrr í vikunni fékk Fram markvörðinn Ólaf Íshólm Ólafsson í sínar raðir en hann var á láni frá Breiðabliki fyrri hlutann á síðasta tímabili.

Gunnar Gunnarsson í leik með Fram.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson