25.10.19 - 17:59
Ívan Guðjón Baldursson
Birta Georgsdóttir búin að semja við FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Birta Georgsdóttir er búin að skrifa undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild FH.
Birta er fædd 2002 og hefur undanfarin tvö ár spilað fyrir FH að láni frá Stjörnunni.
Birta gerði 1 mark í 12 leikjum á sínu fyrsta tímabili með FH í Pepsi-deildinni í fyrra en í ár gerði hún 11 mörk í 16 leikjum í Inkasso-deildinni.
Birta var markahæst í liði FH sem komst aftur upp í efstu deild og var í algjöru lykilhlutverki.
Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára gömul hefur Birta spilað 43 leiki fyrir meistaraflokk og skorað 19 mörk. Þar að auki á hún 22 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.
„Undanfarin tvö ár hefur Birta reynst FH liðinu mikilvæg og því er það mikið ánægjuefni að hún hafi nú skrifað undir tveggja ára samning við félagið og taki slaginn með okkur í Pepsí Max deildinni næsta sumar," segir á Facebook síðu FHingar.net.