Fotbolti.net
25.10.19 - 17:48
Ívan Guðjón Baldursson

Guðmundur Axel í Þrótt R. (Staðfest)

Guðmundur Axel í Þrótt R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur R.

Þróttur R. er búinn að semja við Guðmund Axel Hilmarsson sem hefur leikið fyrir Selfoss síðustu tvö ár. Hann skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2022.
Guðmundur Axel lék sitt fyrsta tímabil með meistaraflokki í fyrra og var valinn bæði bestur og efnilegastur hjá Selfoss er liðið féll úr Inkasso-deildinni.

Honum tókst ekki að halda sæti sínu í byrjunarliði Selfyssinga í 2. deild og spilaði aðeins fjóra leiki er Selfoss rétt mistókst að klifra aftur til baka í Inkasso-deildina.

Guðmundur Axel, fæddur 2001, er uppalinn Þróttari og heldur því aftur heim. Þróttur rétt bjargaði sér frá falli úr Inkasso-deildinni í sumar.

Guðmundur á 15 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands. Hann er hávaxinn varnarmaður sem hefur gert 4 mörk í 18 leikjum í Inkasso.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.