Antonio Rudiger, varnarmaður Chelsea, verður samningslaus næsta sumar og getur byrjað að ræða við önnur félög utan Englands í kringum áramót.
Rudiger hefur verið mikilvægur hluti af leik Chelsea síðustu mánuði en það hefur ekki gengið að endursemja við hann.
Ítalski fjölmiðlamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að Juventus og Paris Saint-Germain séu mjög áhugasöm um Rudiger. Hann segir jafnframt að félög á Englandi séu að sýna honum áhuga; Manchester City og Tottenham.
Marzio gengur svo langt að segja: „Það er erfitt að sjá hann skrifa undir nýjan samning. Hann mun fara í eitt af þeim fjórum félögum sem er nefnt."
Rudiger er 28 ára og hefur leikið með Chelsea frá 2017. Þar áður var hann hjá Roma á Ítalíu.
Athugasemdir