25.11.12 - 11:37
Magnús Már Einarsson
Atli Sveinn Þórarinsson í KA (Staðfest)

Atli Sveinn Þórarinsson og Gunnar Níelsson við undirskriftina í dag.

Mynd: Heimasíða KA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Atli Sveinn Þórarinsson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt KA en hann skrifaði undir tveggja ára samning þess efnis í KA heimilinu í dag. Atli Sveinn lék síðast með KA árið 2004 en hann er nú kominn aftur á heimaslóðir.
Þessi 32 ára gamli varnarmaður hefur frá því árið 2005 leikið með Val en samningur hans við félagið rann út á dögunum.

Í það heila á Atli Sveinn að baki 282 meistaraflokksleiki í deild og bikar, þar af 179 með Val, 60 með KA og 43 með Örgryte í Svíþjóð.
Við þetta bætist síðan fjöldi leikja í deildarbikar o.fl. og því eru meistaraflokksleikirnir farnir að nálgast fjórða hundraðið. Þá á Atli Sveinn níu landsleiki með A-landsliðinu, fjóra U-21 landsleiki og sjö U-19 landsleiki.
,,Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur. Atli Sveinn hefur verið einn af bestu miðvörðum úrvalsdeildarinnar í mörg ár. Með honum fáum við mikla reynslu og sterkan karakter og um leið erum við að fá gamlan KA-mann til baka sem mun miðla af reynslu sinni til ungu strákanna okkar,\" sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari KA eftir undirskriftina.
,,Það að Atli Sveinn mun flytja hingað norður með fjölskyldu sinni er til marks um að hann hefur trú á og vill taka þátt í því sem við erum að gera. Það gleður mig mjög.\"
Gunnar Níelsson, formaður knattspyrnudeildar KA, segir mikinn feng í Atla Sveini. ,,Það er auðvitað ekkert annað en frábært að fá reynslubolta eins og Atla Svein í okkar raðir. Það er ekki bara mikilvægt að fá mann með alla þessa reynslu inn í liðið, hann er uppalinn í þessu félagi, þekkir innviði þess og hjarta hans slær með því.\"
,,Atli Sveinn hefur verið fyrirliði Vals undanfarin ár og það er ekki að ástæðulausu, hann er leiðtogi inni á vellinum og kann þetta allt saman auk þess að miðla af reynslu sinni og þekkingu til sér yngri manna. Það er vissulega gleði í okkar hjarta að endurheimta Atla Svein,\" segir Gunnar Níelsson.