Fotbolti.net
25.11.16 - 07:00
Jóhann Ingi Hafþórsson

Ólafur Örn nýr stjóri Egersunds (Staðfest)

Ólafur Örn á sínum tíma með Fram.

Ólafur Örn á sínum tíma með Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Ólafur Örn Bjarnason er orðinn stjóri norska 3. deildarliðsins Egersunds en Dalane Tidende greinir frá þessu.
Hann hætti á dögunum þjálfum Fyllingsdalen en hann var ekki lengi án atvinnu.

Egersunds er eins og áður segir í 3. deild Noregs en þeir höfnuðu í 3. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og fær Ólafur það hlutverk að koma þeim upp um deild.

Ólafur hefur þjálfað Grindavík hér á landi en hann lék með félaginu um áraraðir ásamt því að hafa leikið með Fram, Malmö og Brann.

Fyllingsdalen féll úr 3. deildinni undir stjórn Ólafs á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.